15.06.2010
Ögmundur Jónasson
Kæri Ögmundur.... Bjarni Benediktsson og hans kumpánar segja að trygging auðæva landsins, þá vatnsins, sem einkaeign allrar Íslensku þjóðarinnar, sé ekkert annað en „þjóðnýting," eins og að það sé eitthvað skammarlegt að þjóðnýta. Persónulega tel ég að trygging á því að ÖLL þjóðin eigi sameiginlega auðævi föðurlandsins um aldur og ævi sé nauðsynleg og sjálfsögð, og ef það er að þjóðnýta, þá í guðanna bænum þjóðnýtum, og það STRAX! . . Það fer ekki á milli mála að öll íslenska þjóðin á að nýta og njóta auðæva Íslands sameiginlega! Því skal þjóðnýta þau sem allra fyrst! Það eru einnig aðrir geirar utan náttúruauðævanna sem starfa í pukri án heiðarlegrar samkeppni til að tryggja hag neytenda, svo sem olíufélögin sem hafa verið staðin að verðsamráði, lyfjainnflutningurinn, síminn, bankarnir, orkugeirinn að vissu marki og ýmislegt fleira sem er nauðsynlegt að þjóðnýta, sem sé að vera í eigu þjóðarinnar og rekið í þágu þjóðarinnar! . . Við sem viljum sem mest einstaklings athafnafrelsi skiljum að þó þjóðin eigi sameiginlega grundvallarþætti athafnalífsins, þá kemur það enganvegin í veg fyrir að einstaklingar stofni sín fyrirtæki og reki þau sér til ágóða, og nýti grundvallar eigur þjóðarinnar til þess.