Fara í efni
VERÐUR ÞJÓÐNÝTING KRAFA 21. ALDARINNAR?

VERÐUR ÞJÓÐNÝTING KRAFA 21. ALDARINNAR?

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 28/29.09.19. ...  Við hin sem lítum á raforku og raforkukerfi sem hluta af innviðum samfélagsins og aðgang að ódýrri raforku sem sjálfsagða þjónustu þar sem ekki eigi að hleypa bröskurum að sem milliliðum, fylgdumst forviða með þingmönnum, sem gefa sig út fyrir að vera félagslega þenkjandi fyrir kosningar, hlaupa undan merkjum ...
AFMÆLISRÁÐSTEFNA ECRI Í PARÍS

AFMÆLISRÁÐSTEFNA ECRI Í PARÍS

Í tilefni þess að réttur aldarfjórðungur er nú liðinn frá því að Evrópuráðið setti á laggirnar nefnd til að takast á við skort á umburðarlyndi og kynþáttamisrétti,   European Commission on Racism and Intolerance, ECRI,   var í vikunni efnt til sérstakrar ráðstefnu þar sem spurt var hvert stefndi í þessum efnum og hvort orðið hefðu framfarir á undanförnum tuttugu og fimm árum eða þvert á móti afturför, og í samhengi við það hvernig til hefði tekist í starfi ECRI. Þarna voru saman komnir ...

BÆÐI GAPAÐ OG TAPAÐ

Allir hérna eru að gapa ástandið ótryggt er Hluthafa hópur er að tapa á bréfum í Icelander. Höf. er Pétur Hraunfjörð
ÞORBJÖRG SIGRÍÐUR MEÐ GÓÐA GREIN

ÞORBJÖRG SIGRÍÐUR MEÐ GÓÐA GREIN

Í Fréttablaðinu í dag biritst í dag grein eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um réttarhöld tengdum mannréttindabaráttu Kúrda. Í umsögn um gein Þorbjargar sagði ég þetta: “ Mig langar til að þakka kærlega fyrir þessa upplýsandi og prýðilegu grein! Nú verður athyglisvert að sjá hver niðurstaða dómsins verður. Eins og vænta mátti héldur tyrkneska málsvörnin því fram að ekki hafi öll úrræði verið reynd til þrautar innanlands áður en farið var með málið til Strassborgar. Þetta hafa íhaldssamar raddir alla tíð sagt og horfa þá framhjá því að ENGAR trúverðurgar réttarfarsleiðir eru ...

EILÍFT SUMAR MEÐ BRENNIVÍN Á NETINU

Þynnku auka, þrotlaust starf, þrautir margar hanna. Vitund fólksins veikja þarf, um villu stjórnvaldanna. Í víni netsins vaða skalt, veisluföng og humar. Fylliraftar fagna um allt, finna eilíft sumar. Þakka greiða þúsundfalt, þurfa vímu gumar. Kári
OECD MEÐ ENDURTEKIÐ EFNI

OECD MEÐ ENDURTEKIÐ EFNI

Á níunda og tíunda áratug síðustu aldar gerðist OECD helsta hreiður áróðursmeistara markaðsvæðingar samfélaganna. Varð einskonar hugmyndasmiðja eða verkstæði. Á íslensku hefur OECD hlotið heitið Efnahags- og framfarastofnunin. Framfarahluti þessarar nafngiftar hefur alltaf orkað tvímælis í mínum huga. Fulltrúum þessarar stofnunar hefur jafnan verið tekið hér á landi sem boðberum mikillar þekkingar og visku þegar þeir hafa lagt leið sína hingað. Fáir virðast muna að ...
ÞETTA ER GERANDINN

ÞETTA ER GERANDINN

Fram er komið að vatnasvið Jökulsár á Fjöllum á Norðausturlandi verður friðað fyrir orkuvinnslu. Nánar tiltekið verður vatnasvið árinnar og áin sjálf suður af Ásbyrgi friðlýst.   Landeigendur á svæðinu hafa hótað að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu fyrir að skerða möguleika þeirra til orkuvinnslu í hagnaðarskyni. Í blaðaskrifum og viðtölum fara landeigendur hörðum orðum um “gerendur” þessarar  friðlýsingar. Lesendur eru upplýstir um að höfuðgerandinn sé að sjálfsögðu umhverfisráðherrann, Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Um hann er farið hörðum orðum.  Ég ætla hins vegar að ...

BANDARÍKIN FÆRA HEIMINN NÆR KJARNORKUVETRI, OG ÍSLAND HJÁLPAR TIL?

Þann 20. október 2018 tilkynnti forseti Bandaríkjanna að Bandaríkin myndu hverfa frá samningi um banni við skamm- og meðaldrægum kjarnorkuvopnum, eða INF samningnum svokallaða, sem Bandaríkin og Sovétríkin höfðu skrifað undir árið 1987. Bandaríkin riftu samningnum þann 1. febrúar s.l. og strax daginn eftir fylgdi Rússland á eftir. Bandaríkin véku formlega frá samningnum 2. ágúst s.l. Vopnauppbyggingin er þegar hafin ...
REYNT AÐ YFIRBUGA LÝÐRÆÐIÐ

REYNT AÐ YFIRBUGA LÝÐRÆÐIÐ

Helsta viðfangsefni stofnanaveldisins í Evrópu er hvernig megi koma í veg fyrir að lýðræðisleg niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um úrsögn Breta úr Evrópusambandinu nái fram að ganga. Með stofnanaveldinu er átt við ríkisvald, fjölmiðlaveldið, háskólasamfélagið, “aðila vinnumarkaðar”, að ógleymdum “álitsgjöfum”(allt með sínum undantekningum), sem tilbúnir eru að stilla sér upp gagnvart meirihlutanum, afgreiða hann sem jaðarhóp, pópúlista og allt þaðan af  verra. En okkur fjölgar sem spyrjum...

UM LÖGLEG BANKARÁN, UNDIRLÆGJUR OG HEILBRIGÐAN HÁVAÐA

Ræna banka, reyna enn, reynslu hafa í faginu. Fara útaf alþingsmenn, einkavæðingarlaginu. Lofgjörð til valdsins ég lítils met, lygi þó margir sæju. Ofar því heilbrigðan hávaða set, hógværri undirlægju. ... Kári