ÁVARP VIÐ SENDIRÁÐ: SLEGGJAN OG STEÐJINN
19.11.2012
Innaríkisráðherra Ísraels sagði í gær að ásetningur Ísraelsríkis væri að sprengja Gaza-svæðið aftur til miðalda; laska grunnstoðir samfélagsins þar - helst eyðileggja þær.. Þetta sagði Eli Yishai innanríkisráðherra og sjónvarpið sýndi vel klæddan mann með bindi, sem gæti hafa verið að kynna nýjustu hagtölur í Stjórnarráði Íslands eða árangur í samgöngubótum; ný göng, nýja brú eða nýtt vatnsból.