Birtist í DV 05.08.09.. Bjartur í Sumarhúsum hefur lifað með þjóðinni allar götur frá því Sjálfstætt fólk Halldórs Laxness kom út á fjórða áratug síðustu aldar.
Sæll Ögmundur. Í ljósi þess að helstu nágrannaþjóðir okkar hafa ákveðið að fara þá leið að kúga og misþyrma okkur hérna fólkinu upp á litla klakanum hefur þá ekki runnið sú hugsun upp hjá þér að tala fyrir því að leita á náðir annarra utantjalds ríkja á borð við Kína og Venesúela til að fá lán án milligöngu alþjóðalögreglu kapítalismans? Hefur þú áhuga á að tala fyrir þessu? . Ágúst Valves Jóhannesson. . Þakka bréf ið.
Franek Rozadowsky, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, sagði í fréttum um helgina að "gjafaþjóðirnar" (donors) hikuðu við að rétta Íslendingum hjálparhönd vegna tregðu okkar að undirgangast Icesave skuldbindingarnar.. Smám saman er það að renna upp fyrir "gjafaþjóðunum" að Alþingi mun ekki samþykkja Icesavedrögin án þess að settir verði fyrirvarar við þau.
Nánasti samstarfsmaður forsætisráðherra gagnrýndi um helgina stórgóða grein Evu Joly um bága stöðu þjóðarinnar gagnvart kröfum, sem ríkisstjórnir nokkurra landa hafa gert á íslensk stjórnvöld, mestan part vegna þess að óvitarnir íslensk stjóprnvöld komu ekki í veg fyrir að nokkrir Heimdellingar byggju til peningalega svikamyllu.
Franek Rozadowsky, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, kom fram í hádegisfréttum RÚV í dag. Hann talaði um nauðsyn þess fyrir Íslendinga að efla gjaldeyrisforða sinn með lántökum frá AGS, Norðurlöndum og öðrum "gjafaþjóðum", " donors".
Gott var að lesa grein Evu Joly, ráðgjafa íslenskra rannsóknaraðila vegna bankahrunsins og þingmanns á Evrópuþinginu, sem birtist samtímis í Morgunblaðinu, norska blaðinu Aftenposten, franska blaðinu le Monde og breska dagblaðinu Daily Telegraph.