Sæll Ögmundur.. Ég hlustaði á morgunútvarpið í Ríkisútvarpinu fyrir helgi þar sem fjármálaráðherrann var spurður út í afstöðu sína til ágreinings innan ríkisstjórnarinnar um að ríkið byggi fangelsi (hugmynd Ögmundar) eða að einkaaðilar byggi það (hugmynd Jóhönnu).
Birtist í DV 25.07.11.. Ég gef mér að No Borders samtökin starfi í þeim anda, sem heiti samtakanna ber með sér, nefnilega að fólki skuli ekki torveldað að fara yfir landamæri og að þeir sem eru á flótta undan ranglæti fái hæli.
Þakka þér greinina um Stjórnlagaráðið og lýðræðið. En hvernig stendur á því að ekki aðrir en þú skuli taka þetta upp? Stjórnlagaráðsfólkið virðist ætla að setja í stjórnarskrá bann við því að kosið verði um tiltekin málefni í þjóðaratkvæðagreiðslu!!! Ef við viljum kjósa um alþjóðaskuldbindingar eða fjárhagsleg málefni þá á að vera bann við því í stjórnarskrá lýðveldisins!!! Ef þetta verður inni þá verða stjórnarskrárdrögin kolfelld.. Jóel A.
Einhverjum innanbúðarmanni í þingflokki VG þótti greinilega ástæða til að koma því á framfæri við kratamiðilinn Eyjuna að Árni Þór Sigurðsson hefði tekið þig "í karphúsið" í tölvupóstssamskiptum ykkar þingmanna VG.
Ég hef stundum dáðst að því hve nýtinn maður Þorsteinn Pálsson er. Sem kunnugt er hefur þessi fyrrverandi ráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, ritsjóri og sendiherra með meiru, tekið að sér að vera fastur dálkahöfundur helgarútgáfu Fréttablaðsins og hefur hann þakið leiðarasíðu blaðsins með skrifum sínum um nokkurt skeið.
Birtist í Mogunblaðinu 22.07.11.. Málefni Reykjavíkurflugvallar hafa verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu í tengslum við fyrirhugað samkomulag ríkis og Reykjavíkurborgar um að bæta aðstöðu fyrir innanlandsflugið.
Stjórnlagaráð segist hlynnt því að þjóðaratkvæðagreiðslu verði gefið aukið vægi í nýrri stjórnarskrá lýðveldisins; tiltekinn hluti þjóðarinnar geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu.
Heiðraði Ögmundur. Ég vil með skeyti þessu skora á þig sem hæstráðanda í málaflokki pólitískra flóttamanna, að taka af fullri alvöru yfirlýsingum Mouhamde Lo frá Máritaniu um yfirvofandi örlög hans snúi hann aftur til landsins.