Ég vil taka til varna fyrir kjósendur Ásmundar Einars á Vesturlandi sem ekki eru flokksbundnir í VG. Hvernig getur þá staðið á því að fámennisklíka í stjórnmálaflokki geti heimtað að skipta út þingmönnum þegar þeim sýnist? Er það eðlilegt endurgjald fyrir að smala atkvæðum á kjördag og skúra félagsheimili flokksins að fá að ráðskast með þá sem ná kjöri í framhaldinu?. Þór.
Davíð Gðmundsson skrifaði frábært bréf sem birtist her á síðunni, NOKKUR DÆMI... Davíð sýnir fram á hve margir þingmenn vísi í nám sitt án þess að hafa prófgráðu upp á vasann.
Egill Helgason segir í psitli sínum á Eyjunni að sér finnist leiðari í Economist vera umhugsunarverður, en þar eru tíunduð hugsanleg „mistök" kjósenda („what has gone wrong") í þjóðaratkvæðagreiðslu í Kaliforníu: sjá hér: http://silfuregils.eyjan.is/2011/04/22/the-economist-laerdomurinn-fra-kaliforniu/. Kaliforníubúar eru þannig taldir samkvæmt Economist hafa gert „mistök" í slíkum kosningum og þá væntanlega einhverjir aðrir líka.
Félagi Ögmundur.. Las eftirfarandi í pistlinum þínum í dag: "Menntun er nefnilega ekki sama og prófgráða. Í mínum huga er meira um vert að innihaldið sé í lagi en umbúðirnar.
Sæll Ögmundur.... Mikið er myndin falleg á vefsíðunni þinni, af þessum fallegu glaðlegu unglingum. svo stoltum með íslenska fánan á stöng! Það þarf meira af þessu til að halda stolti okkar við!!! Og, minna okkur á að við erum Íslendingar!. Bestu kveðjur,. Helgi. . .
Fyrir ekki svo ýkja löngu vöktu mikla athygli hugmyndir, reifaðar í sjónvarpi og blöðum, um nýja nálgun á skipulagsmál í Reykjavík og bæjum og borgum almennt.