Þingmenn Pírata vilja að sögn ekki nota hugtökin háttvirtur og hæstvirtur á Alþingi. Sjá: http://www.dv.is/frettir/2013/9/14/tokum-okkur-ekki-sjalfkrafa-virdingartitil-sem-thjodinni-finnst-ekki-ad-vid-eigum-skilid/ . Ég hef skilning á því en ekki hinu að finnast þetta vera yfirhöfuð eitthvert mál.
Þakka þér fyrir frásögnina af fyrilestrinum um þjóðflutninga. Fyrirlesara þótti, samkvæmt frásögn þinni, undarlega lágt hlutfall heimsbúa hafa reynt að flýja örbyrgð sína, rúmlega 3%.
Enn eina ferðina kemur fram skoðanakönnun sem færir okkur heim sanninn um að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni í Reykjavík og meirihluti Reykvíkinga er á sama máli.
Fram kemur í skýrslu sem Ingimar Einarsson, sérfræðingur á sviði heilbriðgðismála hefur unnið fyrir Krabbameinsfélagið að tuttugu prósent - fimmtungur - af heildarkostnaði við rekstur heilbrigðiskerfisins á síðasta ári hafi komið úr vasa sjúklinga.
Catherine de Wenden, sérfræðingur í þjóðflutningum, hélt í gær fróðlegan hádegisfyrirlestur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samvinnu við sendiráð Frakklands á Íslandi.
Þegar ég kom í ráðuneyti dómsmála haustið 2010, sem síðar varð Innanríkisráðuneyti lýsti ég því yfir á fyrstu dögum að ég væri staðráðinn í því að beina kröftum að spilavandanum og skapa um hann betri umgjörð.
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 07.09.13.. Á borðum hefur að undanförnu verið nýdreginn þorskur úr sjó, kartöflur úr garðinum, salat, rauðrófur og baunir og sitthvað fleira þaðan líka.
Er ekki meiningin að hugsa þetta flugvallarmál til langrar framtíðar? Er ekki verið að tala um hækkun sjávar? Er þá skynsamlegt að byggja flugbraut út í Skerjafjörðinn? Þá væri nær að flytja fulgvöllinn því hann liggur allur lágt.