Sæll ÖgmundurGlaðhlakkalegir voru þeir fóstbræður Davíð og Bush á fundi í Istanbúl. Úr augum Davíðs skein aðdáun þegar hann leit með eigin augum þessa einstæðu fyrirmynd.. Davíð Oddsson dýrkar Bush,það dæmalausa undur, við böðulinn hann bindur trúss bljúgur einsog hundur.. Kristján Hreinsson, skáld.
Leiðtogar stjórnarflokkanna keppast nú við að halda því fram að forsetinn hafi hlotið vonda kosningu – myndast hafi hyldjúp gjá milli Ólafs Ragnars og þjóðarinnar, forsetinn sé ekki lengur það sameiningartákn sem hann á að vera.
Ég er hjartanlega sammála Steingrími Ólafssyni í því sem fram kemur í prýðilegri grein hans hér á síðunni 24/6 undir fyrirsögninni Tvígengisvélin hikstar.
Davíð er löngu hættur að koma á óvart. Líka Halldór. Þeir tveir eru eins útreiknanlegir og Baldur og Konni voru á sinni á tíð; mjög samrýmdir og töluðu alltaf einum rómi.
Var minnst á Kárahnjúkavirkjun fyrir kosningarnar vorið 1999? VG var stofnað 6.f ebrúar 1999. Man einhver sem tók þátt um hvað kosningabaráttan snerist það árið? Var verið að kjósa um Kárahnjúkavirkjun? Mér vitanlega var hún ekki á dagskrá þá.