03.02.2012
Ögmundur Jónasson
Sæll Ögmundur. Hvað ætlar þú minn kæri vinur, að híma lengi undir vörumerki hins kasúldna og svikula hræs, VG, sem Steingrímur J og Svavarsklíkan ríkja yfir og munu ekki sleppa takinu á fyrr en lokið verður við að þröngva þjóðinni til aðlögunar að hinu yfirþjóðlega alríkis-stofnanaveldi, ESB (EUSSR) með tilsjón AGS og erlendra vogunarsjóða og hrægamma og banka-auðræðis? . Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót.