Athyglisvert viðtal er við Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í Fréttablaðinu. Þar er ýmislegt sagt sem ég get tekið undir. Össur talar um þörf á þverpólitískri samvinnu um ýmis stórmál og nefnir Icesave sérstaklega sem dæmi um þverpólitískt samstarf sem verið hafi til góðs.
Ég óska lesendum síðunnar gleðilegs þjóðhátíðardags. Daginn notaði ég til jarðræktarstarfa austur í Grímsnesi en að því loknu var brunað til Reykjavíkur og þáðar kaffiveitingar hjá Helgu Stephensen frænku minni á Laufásveginum í hjarta borgarinnar.
Vatnalögin frá 2006 voru endurskoðun á lagabálki sem að uppstöðu á rót í lögum frá 1923. Með lagabreytingunum 2006 hélt þáverandi ríkisstjórn því fram að hún væri að uppfæra þessi gömlu lög í samræmi við dómapraxís 20.
Í lesendabréfi frá Ólínu hér á síðunni er beint til mín áskorðun sem ég beini hér með til fjölmiðla um að grafast fyrir um hvers vegna heita vatnið frá Orkuveitu Reykjavíkur er hækkað um 37%.