09.12.2011
Ögmundur Jónasson
Í gærkvöldi var mér borin stefna á heimili mitt frá Hells Angels og einum forsprakka þeirra hér á landi þar sem samtökin annars vegar og einstaklingurinn hins vegar krefja mig um samtals fjórar milljónir króna, tvær milljónir króna - hvor um sig - í skaðabætur fyrir ummæli sem þeir telja vera „ósönn og óþarflega meiðandi." Eftirfarandi er úr stefnunni: . . Stefnendur krefjast þess báðir að eftirfarandi ummæli í staflið A-E verði dæmd dauð og ómerk.