Birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 25.11.12.. Nýlega varð ríkið að hlaupa undir bagga til að forða því að hlutafélagið sem rekur Farice og Danice -sæstrengina lenti í hremmingum.
Innaríkisráðherra Ísraels sagði í gær að ásetningur Ísraelsríkis væri að sprengja Gaza-svæðið aftur til miðalda; laska grunnstoðir samfélagsins þar - helst eyðileggja þær.. Þetta sagði Eli Yishai innanríkisráðherra og sjónvarpið sýndi vel klæddan mann með bindi, sem gæti hafa verið að kynna nýjustu hagtölur í Stjórnarráði Íslands eða árangur í samgöngubótum; ný göng, nýja brú eða nýtt vatnsból.
Í dag klukkan 17:00 verður efnt til mótmælafundar vegna voðaverkanna á Gaza fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi.. Í tilkynningu frá Félaginu Ísland-Palestína segir að tilefni fundarins séu „grimmilegar árásir Ísraelshers og fjöldamorð þeirra á palestínskum borgurum á Gaza ströndinni...Bandaríkin eru í lykilstöðu til að stöðva blóðbaðið á Gaza.
Eina ferðina enn stendur heimurinn agndofa frammi fyrir vopnaðri valdbeitingu. Margir gera því skóna að Ísraelsríki sé með árásum sínum á Gaza að grafa undan viðleitni sem nú verður vart á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að viðurkenna Palestínuríki.. Hvað sem kann að vera rétt í því efni vaknar enn á ný spurningin um ábyrgð alþjóðasamfélagsins gagnvart hernaðarofbeldi.
Birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 11.11.12.. Það sem var rétt í gær er ekki endilega rétt í dag. Í gær þótti rétt að fela einkafyrirtæki í eigu bankanna að annast rafræn auðkenni og vildu sumir að það fyrirtæki tæki jafnvel að sér öll rafræn auðkenni á vegum hins opinbera, alla vega drjúgan hluta.
Valdið til fólksins - power to the people. Valdið á að fara til fólksins, ekki vegna þess að það sé skynsamlegt - ekki vegna þess að við treystum fólki.