Mál málanna í hugum einhverra í nýafstaðinni kosningabaráttu í Reykjavík var svokölluð Borgarlína. Sumir voru fylgjandi, aðrir andvígir eins og gengur.
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 26./27.05.18.. Þrátt fyrir tvær heimsstyrjaldir, plágur og hungursneyð, ófáar mannskæðar borgarastyrjaldir, innrásir og yfirgang stórvelda, kúgun og ofsóknir á hendur minnihlutahópum; þrátt fyrir allt þetta er tuttugasta öldin mesta framfaraskeið mannskynssögunnar.
Öll sem hafa ánægju af klassískum gítar .... öll sem hafa ánægju af því að fylgjast með frábærum listmanni .... öll sem hafa ánægju af því að eiga notalega 45 mínúntna kyrrðarstund .... komið í Dómkirkjuna í Reykjavík klukkan 21:15 - 22:00 á þriðjudag (22.maí).. Við munum öll vera velkomin á þessa kvöldhátíð og er hún ókeypis.
Palestínumenn á Gaza, Vesturbakkanum, Austur-Jerúsalem og um allan heim safnast saman þriðjdaginn 15. maí til að minnast þess að 70 ár eru liðin frá upphafi hörmunganna (Nakba) þegar helmingur palestínsku þjóðarinnar var hrakinn í útlegð - og hefur ekki fengið að snúa aftur til heimkynna sinna síðan.. Krafan dagsins er réttur flóttafólks til heimkomu.. Samstöðuhreyfingin með Palestínu um heim allan mun þennan dag styðja kröfu dagsins og rétt Palestínumanna til að lifa við mannréttindi og frið í sínu landi.. Í Reykjavík verður haldinn samstöðufundur á Austurvelli.. Stutt ávörp flytja Salmann Tamimi, Sema Erla Serdar og Ögmundur Jónasson.
Að undanförnu hef ég tekið þátt í umræðu um barnaverndarmál og þá einnig blandað mér í þær deilur sem sprottið hafa í kjölfar kvörtunarmála barnaverndarnefnda í Reykjavík og Hafnarfirði á hendur Barnaverndarstofu og forstjóra hennar sérstaklega, Braga Guðbrandssyni.
Birtist í DV 05.05.18.. Að undanförnu hefur farið fram hatrömm umræða í þjóðfélaginu um mál sem á sér marga snertifleti: Barnaníð, aðkomu stofnana að slíkum málum, samskiptum þeirra á milli, aðkomu eftirlits- og aðhaldsaðila, leka úr stjórnsýslunni, pólitískri ábyrgð ráðherra, hvað telja má siðlegt og ósiðlegt í umfjöllun fjölmiðla, aðkomu Alþingis og einstakra alþingismanna.