16.09.2015
Ögmundur Jónasson
Ekki var ég sáttur við yfirlýsingar Bjarkar Vilhelmsdóttur, fráfarandi borgarfulltrúa, um nauðsynlegt „spark í rassinn" á mörgum þeim sem leita til félagsþjónustunnar.. En þeim mun ánægðari var ég með svohljóðandi tillögu hennar í borgarstjórn Reykjavíkur um Palestínu: „Borgarstjórn samþykkir að fela skrifstofu borgarstjóra í samvinnu við Innkaupadeild Reykjavíkurborgar að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskar vörur meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir.". Tillagan var samþykkt og er hún mikilvæg skilaboð til Ísraelsstjórnar um að láta af ofbeldi í Palestínu og hún er líka mikilvæg stuðningsyfirlýsing við málstað Palestínumanna sem þurfa á því að halda að vonarneistinn í hjörtum þeirra slokkni ekki.. Orð skipta máli en verkin þó enn meira máli.