HJÓLREIÐASKÁL Í HÚSDÝRAGARÐI
08.05.2013
Í morgun skáluðum við Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur í svörtu morgunkaffi í Húsdýragarðinum í Reykjavík þar sem samankominn var fjöldinn allur af hjólreiðarfólki í ásamt forráðamönnum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og fulltrúum hinna ýmsu samtaka sem láta sig hjólreiðar og útivist varða.. Tilefnið var að þarna var hleypt af stokkunum átakinu Hjólað í vinnuna og nú í ellefta sinn.