Tilkynnt var í dag að Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans og Jóhannes Gunnarsson, sem gegnt hefur lykilhlutverki í stjórnsýslunni, muni láta af störfum.
Fregnir berast nú um að einkavæðingardeild Sjálfstæðisflokksins sé nú að hrinda af stað stórsókn í heilbrigðiskerfinu með víðtækum kerfisbreytingum og jafnvel hreinsunum.
Við háskólann í Edinborg í Skotlandi er starfandi sérstök rannsóknarstofnun sem hefur það verk með höndum að kanna afleiðingar mismunandi skipulagsforma í heilbrigðisþjónustunni.
Ég skal játa að oft hef ég verið í vafa um gildi Samkeppnisstofnunar og sviðið að fyrir skattpeninga sem fjármagna þá stofnun skuli spjótum iðulega beint gegn því sem samfélagslegt er.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, virðist ekki alltaf hugsa mjög stórt fyrir Íslands hönd. Þannig sagði hann á þingi í vikunni á þá leið að menn skyldu ekki ætla að miklu munaði um framlag Íslendinga í friðarumleitunum í Palestínu.
Ræða á útifundi á Lækjartorgi . Forsætisráðherra Íslands, sagði á Alþingi í vikunni að við yrðum að gera okkur ljóst að Íslendingar væru þess ekki umkomnir að stöðva ófriðinn í Palestínu.
Svokölluð drottningarviðtöl hafa færst í vöxt í seinni tíð á sjónvarpsrásunum. Davíð Oddsson ruddi brautina en þegar leið á forsætisráðherratíð hans tók hann upp á því að neita að mæta í viðtöl nema hann fengi að vera einn.